blog stats Forsíða CSFÍ

CranioSacral félag Íslands

CranioSacral félag Íslands

CranioSacral félag Íslands var stofnað 17. september árið 2000. Það er systurfélag „Cranio Sacral Society“ í Evrópu og „The American CranioSacral Therapy Association“ í Bandaríkjunum. CSFÍ er fagfélag Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðila á Íslandi.
Markmið félagsins eru:
cranio-mynd2

Að styrkja Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð með því að örva samskipti og upplýsinga streymi milli félagsins og stofnana, annarra fagfélaga og almennings.


Að stuðla að áframhaldandi þróun og skilningi á Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.


Að setja staðla um vinnubrögð og gæði við Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð á Íslandi.


Yfir 200 meðferðaraðilar á Íslandi hafa hafið nám hjá Upledger stofnuninni og hafa um 130 þeirra tekið tvo áfanga eða meira. Þetta er þverfaglegur hópur sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðinga, sjúkranuddara og sjúkraliða. Einnig eru margir úr óhefðbundnum meðferðarfögum. Félagsmenn eru þeir sem lært hafa minnst tvo fyrstu áfangana í höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð hjá Upledger stofnuninni.
Aukafélagar geta þeir orðið sem hafa lokið grunnnámi (CST I og CST II) hjá Upledger stofnuninni og hafa lokið öðru fagnámi, eða tekið ákveðin grunnfög (sjá nám). Áfangar til „diploma“ eru fimm og aðeins þeir sem hafa lokið því námi geta gerst aðalfélagar. Þessir áfangar eru CST I, CST II, SER I, SER II og Advanced I.
Upledger Institute hefur kennt áfanga hér á Íslandi en einnig hafa félagsmenn sótt nám bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Upledger námið er staðlað, þ.e. kennslan eins hvar sem er í heiminum og því skiptir ekki máli hvar eða hvenær áfangarnir eru teknir.
Félagsmenn eru nú yfir 120. CSFÍ sinnir einnig þeim sem einungis hafa tekið fyrsta áfangann og eru því ekki orðnir félagsmenn ennþá. Þeir eru velkomnir á „æfingadaga“ sem haldnir eru reglulega á vegum CSFÍ.
CSFÍ er aðildarfélag að
Bandalagi íslenskra græðara (BIG), regnhlífarsamtökum fagfélaga í heildrænum meðferðum.
Formaður CSFÍ er
Freygerður Anna Ólafsdóttir.