CranioSacral félag Íslands
big-logo
Bandalag íslenskra græðara - fyrir hvað stendur það?
Bandalag íslenskra græðara, eru regnhlífasamtök óhefðbundina meðferðaraðila. Aðildarfélögin eru fagfélög fyrir mismunandi meðferðaraðila sem eiga það allir sameiginlegt að líta á manninn sem eina heild, líkamlega og tilfinningalega. Margar þessara meðferða eiga rætur sínar að rekja árþúsundir aftur í tímann.

Sameiginlegt heiti félaganna í BÍG er græðari, sem er gamalt og gott heiti yfir lækni.

BÍG var stofnað 30. nóvember árið 2000. Á stofnfundi voru sex aðildarfélög en nú í dag eru þau orðin níu. Aðildafélögin eru: Aromatherapyfélag Íslands, CranioSacral félag Íslands, Cranio félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara, Félag íslenskra heilsunuddara, Félag lithimnufræðinga, Organon fagfélag hómópata, Samband svæða- og viðbragðsfræðinga á Íslandi, Svæðameðferðarfélag Íslands og Shiatsufélag Íslands.

Markmið Bandalagsins er að samræma grunnmenntunar kröfur fagfélagana, vinna að framgangi óhefðbundina meðferðaforma og vera opinber málsvari þeirra.

BÍG er aðili að samnorrænum regnhlífasamtökum, Nordisk Samarbejds Komité för ikke-konventionel medisin, skammstafað NSK, en það eru samtök sem vinna að samræmingarmálum varðandi menntun og viðurkenningu á heildrænum meðhöndlunum á Norðurlöndunum.

Bandalagið er samtök eftirtalinna fagfélaga:
ATFÍ – Aromatherapyfélag Íslands
CSFÍ - CranioSacralfélag Íslands
Cranio - Félag höfuðbeina- og spjaldhryggjarjafnara
FÍHN - Félag íslenskra heilsunuddara
FÍL - Félag íslenskra lithimnufræðinga
Organon - Fagfélag hómópata
SMFÍ - Svæðameðferðafélag Íslands
SSOVÍ - Samband svæða- og viðbragðsfræðinga á Íslandi
SFÍ - Shiatsufélag Íslands

Þeir sem eru fullgildir félagar í framangreindum félögum eru aðilar að BÍG. Alþingi hefur nú samþykkt lög um græðara sem fela m.a. í sér að sett verði á fót frjálst skráningarkerfi græðara. Munu félagsmenn sem skrá sig í þetta skráningarkerfi bera auðkennið skráður græðari, auk fagheitis.

Til þess að fræðast meir um ofangreind fagfélög er hægt að fara inn á vefsíðu Bandalags íslenskra græðara: www.big.is