CranioSacral félag Íslands
StPt
„Hnakkabrjóst“ eða Still Point Inducer eru byggð á kenningum Johns E. Upledgers um höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.

Þau daga úr höfuðverk og vanlíðan með því að framkalla hlé á heila- og mænuvökvataktinum sem styrkir miðtaugakerfið.

Dagleg notkun hjálpar til við að lina verki vegna sýkinga, meltingartruflana, höfuðverkja, stoðkerfisvandamála og streitu, eða bara þegar þörf er á afslöppun.

Notkunarleiðbeiningar:
1. Veljið þægilegan stað, rúm, bekk eða gólfið, og leggist á bakið.
2. Setjið hnakkabrjóstin undir hnakkann á móts við eyrun (um 2½ - 4 cm ofan við banakringluna).
3. Látið þunga höfuðsins hvíla á hnakkabrjóstunum.
4. Lokið augunum og slakið á.
hnakkabrjost


Athugið:

Ekki nota hnakkabrjóst ef þér er hætt við að fá slag, heilablæðingu, slagæðagúlp í heila eða heilaæxli. Ekki nota hnakkabrjóst heldur ef þú hefur nýlega hlotið höfuðkúpubrot eða aðra áverka þar sem vökvabreytingar í höfði geta verið skaðlegar.