CranioSacral félag Íslands
upledger

Dr. John E. Upledger er forseti Upledgerstofnunarinnar (The Upledger Institute) sem hefur helgað sig náttúrulegri heilsueflingu og er heimsþekkt fyrir að hafa markað tímamót í símenntun, rannsóknum og þróun á líkamsmeðhöndlun.

Allan sinn feril sem læknir og osteópati hefur Dr. Upledger verið frumkvöðull og ákafur talsmaður rannsókna á nýjum aðferðum í líkamsmeðhöndlun. Sérstaklega hefur þróun hans á höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð borið hróður hans um víða veröld.

Þó Dr Upledger hafi öðlast mestan hluta reynslu sinnar á eigin störfum og rannsóknum, starfaði hann einnig hjá Osteopathic College of Michigan State University 1975-1983 sem prófessor í lífaflsfræði. Þar leiddi hann teymi af líffræðingum, lífeðlisfræðingum og lífefnaverkfræðingum við rannsóknir á tilvist og áhrifum höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfisins.

Niðurstöður þessara rannsókna útskýrðu hvernig höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfið vinnur og hvernig það kerfi kemur að góðum notum við greiningu og meðhöndlun á heila og mænu, sem ekki hafði verið mikill skilningur á.

Dr. Upledger þróaði höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðina, sem og aðra tengda tækni, út frá þessum niðurstöðum. Þessar aðferðir eru nú kenndar fagfólki um allan heim á vegum Upledgerstofnunarinnar.

Hann stofnaði Upledger styrktarsjóðinn (The Upledger Foundation) árið 1987 til að ná til þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu, í þeim tilgangi að bæta heilsu þeirra. Styrktarsjóðurinn hefur helgað sig áframhaldandi rannsóknum og þróun nýrrar meðhöndlunartækni, ásamt kynningu á Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðinni gagnvart almenningi, með almenna heilsueflingu sem markmið.

Dr. Upledger er í dag forseti Upledger stofnunarinnar, lækningaforstjóri HealthPlex Clinical Services, löggilddur félagi í The American Academy of Osteopathy, heiðursfélagi í the British Society of Osteopathy og
Doctor of Science, Medicina Alternativa. Hann á einnig sæti í ráðgjafahópi á vegum bandaríska heilbrigðisyfirvalda um óhefðbundnar lækningar (The Alternative Medicine Program Advisory Council for the Office of Alternative Medicine at the National Institutes of Health) í Washington, D.C.

Dr. Upledger hefur ritað fjölmargar bækur og handbækur um höfuðbeina- spjaldhryggjarmeðferð, ásamt hátt á þriðja tug rannsóknargreina. Meðal helstu ritverka hans eru:
CranioSacral Therapy
CranioSacral Therapy II - Beyond The Dura
SomatoEmotional Release and Beyond
Your Inner Physician and You
A Brain is Born
CranioSacral Therapy - Touchstone for Natural Healing

Þýtt og endursagt af Netinu.