Höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð fer fram með þeim hætti að í flestum
tilvikum liggur sá er þiggur meðferðina á bekk og er
fullklæddur. Meðferðaraðilinn byrjar á að greina
hreyfinguna í mænuvökvanum með því að þreifa eftir henni á
nokkrum stöðum á líkamanum, finnur hann hvar spenna liggur
sem hindrar hreyfinguna. Einnig leitar hann eftir
staðbundinni spennu í bandvef. Meðferðin felst í því að
losa um spennuna í bandvefnum og því að liðka til fyrir
hreyfingu höfuðbeina og spjaldbeins. Síðan eru þessi bein
notuð til að toga léttilega í himnurnar sem festast við
þau. Þannig næst að losa um spennu í þessu himnukerfi.

Algengt er að þessi meðferð taki um klukkustund í senn en
það er mjög misjafnt eftir einstaklingum hve oft þarf að
koma til að liðka vel um kerfið. Langflestir finna fyrir
verulega bættri líðan á fyrstu 1-3 skiptunum. Hafa mjög
margir gert þessa meðferð að reglubundnum þætti í sinni
heilsueflingu.
Yfirleitt er notaður léttur
þrýstingur eða tog sem hefur að markmiði að meta og
meðhöndla himnurnar sem umlykja miðtaugakerfið. Þessi
meðferð vinnur með líkamanum í að auka eigin getu til að
efla starfsemi miðtaugakerfisins, minnkar neikvæðar
afleiðingar streitu, eflir almennt heilsufar og eykur
viðnám gegn sjúkdómum.