CranioSacral félag Íslands

Kynningarnámskeið

Upledger Stofnunin á Íslandi býður upp á kynningarnámskeið sem er ætlað þeim sem vilja fá reynslu og þekkingu um Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. Fyrir almenning mun námskeiðið gefa einfalda og mjög gagnlega tækni til nota á sína nánustu til að bæta heilsu og auka vellíðan þeirra. Fyrir fagfólk og þá sem hyggja á faglegt nám er þetta námskeið frábært til að fá innsýn í Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. Fyrir marga er það vendipunktur í lífinu að kynnast þessu frábæra meðferðarformi.

Kennd eru hagnýt grunnhandbrögð á einfaldan og skemmtilegan hátt og tengda vinnu með líkamsorkuna. Kenndur er fræðilegur grunnur þessarar meðferðar.
Erla

Kennarar eru: Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfari og Birgir Hilmarsson nuddfræðingur. Heimasíðan er
www.upledger.is




Einnig býður UI á Íslandi að halda slík námskeið fyrir fagfélög, félagasamtök eða vinnustaði og þá í samvinnu við tengilið hópsins. Ef þú hefur áhuga á að skipuleggja slíkt námskeið í þínum heimabæ, fyrir vinnustaðinn eða fagfélag. Nokkrir möguleikar eru á fyrirkomulagi slíkra námskeið.

Vinsamlegast hafið samband vegna frekari upplýsinga í síma 466-3090.