Ef umsækjendur hafa ekki þennan grunn, hefur þeim verið vísað á að taka sambærilegan grunn og er á nuddbraut. Þeim hefur verið bent á að taka þessi fög í framhaldsskólum landsins, samhliða náminu hjá Upledger institute.
• Heilbrigðisfræði (HBF 102, 203) 5 einingar
• Líffæra- og lífeðlisfræði (LOL 103, 203) 6 einingar
• Líffræði (LÍF 103 /=NÁT 103) 3 einingar
• Líkamsbeiting (LÍB 101) 1 eining
• Næringarfræði (NÆR102) 2 einingar
• Sálfræði (SÁL103/123) 3einingar
• Siðfræði (SIÐ 102) 2 einingar
• Sjúkdómafræði (SJÚ 103, 202) 5 einingar
• Skyndihjálp (SKY 101)1 eining
Val: Auk skyldufaga verði valdar minnst 4 einingar úr eftirtöldum fögum.
• Vöðvafræði 2 einingar (eru nú 6 einingar)
• Bætiefnafræðsla 2 einingar
• Sýklafræði 2 einingar.
• Rekstur fyrirtækja 1 eining
• Saga og þróun óhefðbundninna lækninga á Íslandi 3 einingar, (er ekki orðið að raunveruleika)
• Viðtals og samskiptatækni 2-3 einingar
Samtals eru þetta 32 einingar í bóklegum fögum
5 áfangar eru til diploma. CST I, CST II tæknipróf, SER I, SER II og Advanced I síðan diplomapróf.
Síðan eru fullt af sér áföngum sem fólk getur tekið. Þetta er til að komast á register en fólk getur gerst aukafélagar í CSFÍ eftir CST II en kemst ekki á register. Einnig eru margir hliðaráfangar eða sérhæfingaráfangar t.d. höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferð á börnum og meðferð á innri líffærum, meðferð í vatni ofl.
(sjá www.upledger.com, www.upledger.co.uk, www.upledger.is).
Hver áfangi er ca. 111 kennslustundir.