Höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð í vatni!
Upledger
höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð hefur notið mikilla
vinsælda hér á landi síðustu árin og er orðið nokkuð þekkt
meðferðarform. Unnið er með og losað um spennu og hindranir
í himnukerfi (bandvef) líkamans. Lesa meira.
Dr. William
Sutherland fæddist í
Portagesýslu í Wisconsin árið 1873. Hann var af verkafólki
kominn, faðir hans var járnsmiður og móðir hans húsmóðir.
Hann stundaði nám við American School of Osteopathy og var
nemandi A.T.Still, sem álitinn er faðir
osteópatíunnar. Lesa meira.
Andrew Taylor
Still fæddist árið
1828 í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í landnemabyggðum
Leesýslu í Virginíu. Fjölskyldan var stór og faðir Still
annaðist nágranna sína í hinum dreifðu byggðum Virginíu,
Tennesee og Missouri á bæði sál og líkama, enda bæði læknir
og prestur. Landnemalífið kenndi Still sem ungum dreng að
meta undur náttúrunnar. Tímunum saman undi hann sér við
náttúruskoðun, hvattur áfram af föður sínum, sem kenndi og
leiðbeindi syninum. Sem sonur farandprests, sem einnig var
læknir, kynntist Still fljótt dekkri hliðum lífsins, þar á
meðal sjúkdómum eins og kóleru, bólusótt og heilahimnubólgu
sem þurrkuðu oft út heilu fjölskyldurnar.
Lesa meira.
Dr. John E.
Upledger er forseti
Upledgerstofnunarinnar (The Upledger Institute) sem hefur
helgað sig náttúrulegri heilsueflingu og er heimsþekkt
fyrir að hafa markað tímamót í símenntun, rannsóknum og
þróun á líkamsmeðhöndlun. Lesa meira.
Höfuðbeina-
og spjaldhryggjar meðferð
Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð hefur notið
mikilla vinsælda hér á landi síðustu árin. Þetta er milt og
öruggt meðferðarform sem byggir á ákveðnum handbrögðum og
tækni. Greint er ójafnvægi í höfuðbeina- og spjaldhryggjar
kerfinu og það leiðrétt. Unnið er með og losað um spennu,
samgróninga og bólgur í öllu bandvefs- og himnukerfi
líkamans. Meðferðin eykur orku og vökvaflæði líkamans og
fer ennig inn á að losa um bældar tilfinningar sem tengjast
spennu í vefjum hans (vefræn tilfinningalosun).
Lesa meira.