CranioSacral félag Íslands

Upledger stofnunin

UII_Gebaude

Dr. John Upledger stofnaði Upledger Institute í Bandaríkunum árið 1985.


Hlutverk Upledger stofnunarinnar (UI) er að stunda rannsóknir, bjóða upp á meðferðir sérfræðinga og kenna höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð og önnur meðferðarform henni tengd.

Höfuðstöðvar UI eru í borginni West Palm Beach í Flórida í Bandaríkjunum. Einnig eru deildir í öðrum löndum og er umsjón og kennsla hér á landi í höndum íslensku deildarinnar; Upledger Institute Island. (
www.Upledger.is)

Námskeiðin sem boðið er upp á eru í stöðugri þróun og einnig eru ný námskeið sífellt að líta dagsins ljós hjá UI.

Meðal athyglisverðra námskeiða má nefna námskeið þar sem þátttakendur eru viðstaddir og taka þátt í krufningu. Megináhersla er lögð á bandvef í brjóstkassa og hálsi og einnig hvernig himnur mænu og heila tengjast innbyrðis, festast við höfuðbeinin sem og hvernig þær bregðast við hreyfingu beinanna.
pic-1

Önnur ný námskeið eru
The Brain Speakes, CST and the Immune Response, Advanced II og III. Þá má nefna námskeið sem eru kennd á Bahamaeyjum og byggja á meðferðarvinnu í hafinu og þeim græðandi öflum sem í því búa. Á Íslandi er einnig boðið upp á meðhöndlun í vatni, bæði námskeið þar sem unnið er í sundlaugum og í Bláa lóninu.

Þróun allra þessara nýju námskeiða byggir á aðferðarfræðinni í Somato Emotional Release en sú aðferð gerir það að verkum að þeir sem meðhöndlunina hljóta, finna innan frá til eigin getu til breytinga á lífi og heilsu. Þannig eru í raun engin takmörk fyrir því hvað gera má til að efla eigin heilbrigði og heilsu.