Höfuðbeina og
spjaldhryggjarmeðferð hefur verið að þróast alla síðustu
öld út frá vinnu og uppgötvunum þriggja lækna; A.T. Still,
William Sutherland og Dr John E. Upledger.
A.T. Still (1828-1917)
missti þrjú barna sinna
þegar þau veiktust af heilahimnubólgu. Hann áleit þau
hafa dáið af meðferðinni en ekki sjúkdómnum sjálfum.
Hann hneigðist í átt að náttúrulækningum eftir þá erfiðu
reynslu. Hann lagði mikla áherslu á að líkaminn væri ein
eining eða heild og að uppbygging líkamans og starfsemi
hans væru nátengd. Hann leit á líkamann sem kerfi með
sjálflæknandi eiginleika, því minna sem gripið sé inn í
starfsemina því betur gangi að læknast. Hann komst
einnig að þeirri niðurstöðu að sum lyf væru hættuleg.
Hann þróaði bein- og liðskekkjulækningar (osteopathy) og
er kallaður faðir osteopathíunnar. Í byrjun tuttugustu
aldar stofnaði Still skóla í Osteopathy í Missouri í
Bandaríkjunum.
Osteopatinn William Sutherland (1873
-1954) var
nemandi A.T Still. Hann er talinn vera upphafsmaður
höfuðbeinaliðfræðinnar (Cranial Osteopathy) Hann hafði
mikinn áhuga á uppbyggingu höfuðkúpunnar og setti fram
kenningar um að hægt væri að hreyfa höfuðbeinin og hafa
þannig áhrif á starfsemi heilans og heilatauganna.
Sutherland taldi að með því að leiðrétta afstöðu á milli
höfuðbeinanna þá lagaðist starfsemi líkamans.
Dr. John Upledger fékk áhuga á höfuðbeina liðfræði
(Cranial Osteopathy) eftir að hafa rekist á taktfastan
slátt í mænuvökvanum þegar hann aðstoðaði við
skurðaðgerð þar sem fjarlægð var kölkun á utanverðri
mænuhimnu í hálsi. Hlutverk hans í skurðaðgerðinni var
að halda mænuslíðrinu kyrru á meðan kölkunin var skafin
burtu. Dr. Upledger átti í erfiðleikum með að halda
slíðrinu kyrru vegna hinnar kröftugu og taktföstu
hreyfingar sem í slíðrinu var. Þrátt fyrir að Dr.
Upledger væri lærður læknir þá gat hann ekki útskýrt það
sem hann hafði orðið vitni að. Þegar hann spurði félaga
sína sem unnu með honum að þessari skurðaðgerð um þennan
slátt í mænuslíðrinu þá gat enginn þeirra útskýrt þetta
fyrir honum.
Kenningar Sutherlands byggðust á því
að höfuðkúpan væri samsett úr mörgum beinum.
Beinsaumarnir á milli þeirra væru í raun liðamót og
þannig gætu bein höfuðsins hreyfst og verið á hreyfingu
alla ævi mannsins. Dr. Upledger tengdi kenningar Dr.
Sutherlands við hina taktföstu hreyfingu í mænuslíðrinu
sem hann hafði orðið vitni að. Hann setti fram kenningu
sem byggðist á því að innan höfuðsins væri starfandi
hálflokað vökvakerfi og einbeitti sér síðan að því að
sanna tilveru og starfsemi þessa kerfis.
Dr. Upledger nam fræði
Sutherlands og árið 1975 hóf hann störf við Osteopathic
College of Michigan State University sem rannsóknarmaður og
prófessor í lífaflsfræði. Þar leiddi hann teymi af
líffræðingum, lífeðlisfræðingum og lífefnaverkfræðingum og
þróaði CranioSacral meðferðina á árunum 1975 til 1980,
eftir mikla rannsóknarvinnu. Ólíkt Cranial Osteopathy
gengur CranioSacralmeðferðin út frá því að beinin þjóni og
fylgi bandvefnum en ekki öfugt. Niðurstaða Dr. Upledger var
sú að árangursrík meðferðarvinna yrði að taka til allra
þátta mannsins, jafnt líkamlegra sem andlegra þátta.
Maðurinn er ein heild og það ber að meðhöndla hann sem
slíkan.
Árið 1985 stofnaði Dr. Upledger síðan Upledgerstofnunina
(The Upledger
Institute).
Meginmarkmið hennar eru að rannsaka, þróa, kenna og kynna
Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð fyrir
almenningi og fagmönnum sem starfa við líkamsmeðhöndlun.
Stofnunin er kennslu-, rannsóknar- og meðferðarstofnun
Upledgerstofnunin er í dag fremst í þróun og meðhöndlun í
höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, auk fjölda annarra
tengdra aðferða við líkamsmeðhöndlun. Hefur Dr. Upledger
verið í fararbroddi þeirra sem þróað hafa CranioSacral
meðferðina og er enn að þó hann sé kominn yfir sjötugt.
Á þeim tæpu 30 árum sem Dr. Upledger hefur þróað þetta
meðferðarform, hafa hann og félagar hans hjá
Upledgerstofnuninni innleitt margt úr kenningum austrænna
lækninga, ásamt þekktum aðferðum úr sálarfræðinni, til þess
að efla það og styrkja sem sjálfstætt, viðurkennt
meðferðarfag. Dr. Upledger hefur einnig skrifað fjölda bóka
um CranioSacral meðferðina.
Árið 2005 voru
yfir 60.000 meðferðaraðilar víðs vegar um heiminn búnir að
kynna sér þessar aðferðir með því að stunda nám við
Upledgerstofnuna.